|
|
26.09.2006 18:51:57 / Arnar
vildi bara koma því á framfæri að ég dreg andann ennþá....
bloggið er dáið hinsvegar
Arnar
»
15.09.2006 19:47:17 / bobby
opup('http://edda.is/net/image.aspx?id=3589','350','500','1')">

Úr
Morgunblaðinu 22. ágúst:
Ég hnaut um það í grein
forstjóra Landsvirkjunar í Morgunblaðinu 16. ágúst að
umhverfisáhrif Kárahnjúkavirkjunar hefðu verið rannsökuð og
metin af færustu sérfræðingum þjóðarinnar og öll gögn birt og
ekkert undan dregið. Ég hrökk við vegna þess að ég hélt að
það hefði ekki farið fram hjá neinum að hinir færustu sérfræðingar
og þartilbærar stofnanir vöruðu við þessum framkvæmdum. Það voru
stjórnmálamenn sem gengu gegn ráðleggingum þeirra og þeir verða að
bera ábyrgð á því en ekki færustu sérfræðingar þjóðarinnar.
Helgi Björnsson Jöklafræðingur
Hvet alla
til að fara út í búð og kaupa bókina Draumalandið eftir Andra
Snæ
kv.
Bobby
»
13.08.2006 18:09:35 / Arnar
Sælt veri fólkið
Það er nokk erfitt að koma á eftir svona bloggi eins og hjá
Bobby en ég skal reyna.
Loksins er maður kominn í smá rólegheit, ég er búinn að vera
vinna bara eins og skepna og síðan rétt nær maður að keyra bílínn á
æfingu og eftir það er ekki mikið eftir í manni.
En ég held að þetta sé gott, síðan er á döfinni danmörk og síðan
útskriftarferð og maður er alveg hættur að nenna fara í þá
síðarnefndu, en það kemur hreinlega í ljós
Sæl að sinni
»
31.07.2006 15:58:54 / bobby
lang síðan að ég bloggaði og ætla því að henda inn nokkrum
punktum...
...
...
...
...
...
...
kv. Trausti Þór a.k.a Bobbí T
»
09.07.2006 22:59:29 / Arnar
jæja, það var tekið smá ferðalag í borgina um helgina. Ég og
Babar ákváðum að ég skyldi bara keyra vegna ökulags míns og
hæfileika sem ég hef framyfir Babar. Ákveðið var að ég
tæki mér frí eftir hádegi í vinnunni til að við gætum náð
úrslitaleiknum á HM kl 19.00 á föstudag. Það var ljúft
og ég tók keyrsluna á þetta að vanda hægt og þægilega bara. Við
nenntum síðan ekki að stoppa í staðarskála til að
vera fljótari á leiðinni, bara vesen að vera stoppa og fá sér
að éta og vera svona 20 mín til hálftíma að því... meðvitað
keyrðum framhjá, sennilega 20 mínútum í burtu þá sé ég bíl í
fjarska og hægi smá á mér... byrjar hann að blikka bláum ljósum og
ég hægi á mér... Babar lítur fjallbrattur uppúr FM og segir mér að
hann sé ábyggilega ekkert að meina mig og ég eigi bara að keyra
áfram. Niðurstaðan var að einhver félagi frá Hólmavík var að vinna
fyrir laununum sínum og ég hafði víst verið á 121.
Síðan skiptum við Babar um nafn, því um leið og ég sest inní
bílinn, búinn hjá löggunni, þá kemur Steini hughreystandi og segir
mér að hann hafi unnið 6-0 í FM... núna var ég babar
Föstudagskvöldið fór síðan bara í bíó á Click (ég veit það
ekki) en þó komu nokkur forlát atriði sem fólu í sér fallega
gula önd.
Laugardagurinn fór í kringluna og hlátur á minn kostnað. Ég,
einn besti golfari í herberginu mínu var aðhlátursefni
sérfræðinganna á Básum (í grafarholti) það var meirasegja
félagi af Stuðlum með stuðningsaðilanum sínum sem var með betri
sveiflu en ég. Golfferillinn stutti er dauður.... ég þarf nokk
ljóslega að fara í kennslu þar á bæ
Keilan um kvöldið var góð, en fæst orð um hana halda fyrrverandi
Babar (steina) rólegum en við skulum sættast á að hann tapaði alveg
gjörsamlega og við vorum meirasegja beðin um að skipta um braut
meðan gert var við fyrri brautina, eða réttara sagt pússaðar upp
allar dældirnar á gólfinu eftir steina. En hey, eins og sagt er,
leiðinlegt að þinn dagur sé síðan á morgun og þá ertu ekki í
keilu.
Sunnudagurinn, keyrt heim, rólega... því ég var hræddur við allt
sem hreyfðist á veginum, skynsamleg hræðsla því rétt hjá
staðarskála var vinur minn frá því á föstudag ennþá að vinna fyrir
kaupinu sínu. Og já síðan var úrslitaleikurinn á sunnudag, þannig
að við rétt náðum seinni hálfleik og úrslitum úr honum,
ég vil enda þetta á tvennu
góður Zidane að enda landsliðsferilinn svona
og passið ykkur á kindum á holtavörðuheiðinni
arnar út...
kvittiði gott fólk þó svo að þetta sé alltof langt og í raun
mætti klippa þetta í þrennt og birta bara einn þriðja í einu.
»
21.06.2006 18:50:06 / Arnar
jájá
ætli það sé ekki kominn tími á nýja færslu því það eru að
öllum líkindum eitthvað um mánuður síðan ég bloggaði síðast. Gaman
væri að gá að því og sjá hvort giskið mitt á mánuðinn sé rétt ? og
þó
Helst er frá því að segja að ég gerði stóra hluti í prófunum
og frumlas stóran hluta af bókunum mínum fyrir próf og það
furðulega var að maður var að fá svona 7 og 8 í flestu.. hvernig er
þetta rökstutt ? að maður sofi bara allan, eða meiripart af vetri
og fái bara þokkalega einkunn... þetta skil ég ekki en þó þakka ég
innilega fyrir þetta. Þetta leiðir það af sér að minns fær að fara
í fjórða bekk á næsta ári, sniðugt það
En
síðan er líka markvert að segja frá því að úff hvað maður er glaður
að vera byrjaður að vinna, kannski er ég eini vitleysingurinn sem
var hress og glaður klukkan 7 að fara minn fyrsta dag í vinnuna og
leið vel og gat vaknað á réttum tíma sem hefur sennilega ekki skeð
bara síðan síðasta sumar.
Síðan heyrði ég áhugaverða umræðu á rás 1 (fm 91.6) í dag eða
raunar bara bláendann því ég heyrði ekki byrjunina (sem er rökrétt
held ég). Þar var verið að tala um þróunarbreytinguna milli til
dæmis snáka, hvala og
einhverra fleiri dýra og nú er genið fundið sem stjórnaði þessu og
þá er næsta skref að nýta sér það til að rækta upp endurvöxt í
mönnum (sár gróa, og líkamshlutar vaxa á nýtt) en eins og með margt
í vísindum þá er þetta fjarlæg framtíð og þetta gladdi mig mjög að
heyra.
Ég
held að líklega enginn hafi áhuga á þessum þætti en þó er hann
aftur næsta miðvikudag á rás 1 (fm 91.6) eitthvað um 1-2
leitið.
Einnig svona í lokin þá er http://www.fotboltaskolipeturs.ismeð
betri heimasíðum í dag og þar birtist nýtt heilræði á hverjum degi
og fullt af kennslumyndböndum um hvernig maður á að spila fótbolta
(menn eins og Steini (www.steini13.bloggar.is) og Elmar
(www.lime.org) ættu að taka Pétur til fyrirmyndar og stúdera
síðuna)
arnar út..
»
12.06.2006 15:13:44 / bobby
Jaa góðann og blessaðan daginn, frekar langt síðan að ég yddaði
blýantinn og henti inn nokkrum orðum, jafnvel setningum. Þannig að
nú er ég búinn að bretta upp ermarnar og ætla að henda einhverju
hér inn. Málið er hins vegar að ég hef lítið að segja þessa
stundina. Er byrjaður að vinna á póstinum sem er mjög þægileg
vinna, var búinn kl. 11 í morgun, einnig eru prófin búin og gekk
það allt saman mjög vel þannig að ég óska öllum til hamingju með
próflokin.
Nú er HM í fótbolta byrjað og ég ræð mér vart af kæti yfir því,
aðsjálfsögðu styð ég Englendingana eins og ávaltt þó að Ítalía og
Spánn fylgi þar fast á eftir, aðsjálfsögðu hef ég samt sem áður
gaman af því að horfa á öll liðin. Þó að menn séu að missa sig yfir
HM megum við ekki gleyma handboltanum en um næstu helgi er
gríðarlega mikilvægur leikur hjá íslenska landsliðinu í handbolta
gegn Svíum og þá ræðst hvort Ísland verður með á HM í handbolta eða
ekki og hvet ég því alla til að renna suður og styðja þá.
Pælingar:
Afhverju svarar
fólk alltaf spurningunni ,,hvað segiru gott?” á sama hátt, þ.e.a.s
,,ég segi bara allt fínt” eða ,,ég segi bara allt ágætt” en fólkinu
líður kannski samt sem áður alveg ömurlega, setur bara upp svona
þaðeralltílagimeðmig grímu.
Einnig held ég að flestir sem spyrja
þessarar spurningu ,,hvað segiru gott?” séu ekkert yfir sig
forvitnir yfir því hvernig manni líði heldur er þetta meira svona
kurteisishjal og oft inngangur að frekar samræðum, t.d þegar
einhverjum vantar greiða og hringir í þann sem getur reddað
greiðanum.
S: ,,Sæll Gunnar”
G: ,,Blessaður Sigurður”
S: ,,hvað segiru gott?”
G: ,,ég segi bara allt fínt
sko”
S: ,,já heyrðu, mig vantar
eigilega...
Þið skiljið hvað ég er að
fara.
Já stundum koma yfir mann svona pælingar eins
og til dæmis um daginn þegar ég var að rölta á förnum vegi og mætti
Kalla prent, þá hugsaði ég: hvað er Kalli prent að hugsa núna, er
hann haldinn þungum hugsunum eða er hann bara að hugsa um einhverja
vitleysu, er Kalli prent svo kannski eftir allt Sókrates okkar
tíma...tja, maður spyr sig
En kominn tími á að enda
þetta..
Kvikmynd bloggsins er V for Vendetta
- http://www.imdb.com/title/tt0434409/
»
26.05.2006 13:33:33 / Arnar
Tími á smá blogg
Þvílík aðsókn eftir að maður setti myndina upp, maður þarf að
fara finna fleiri slúðursögur og myndir og birta... hugmynd...
Nú er maður í letikasti eftir stífan lærdóm fyrir eðlisfræðina
sem var í morgun, þetta var prófið sem var í vafa þar sem ég
er búinn að í raun sitja og gera ekkert allan vetur í þessum
tímum. En prófið var í léttari kantinum sökum þess
að Brilló vill ekki fá 79% fall í áfanganum
Núna er maður bara að fara læra fyrir næsta próf og svo
koll af kolli þangað til þetta er búið og maður getur fagnað því
(einungis hóflega) og farið síðan að vinna sem verður mikill
léttir.
En engu að síður þá hef ég ekkert mikið að segja nema ég vil
minna fólk á lagið The Beatles - Blackbird
og einnig Oasis - The importance of being idle
þessi lög er hægt að hlusta á, á: www.radioblogclub.com
Arnar út.. (kvittiði svo börnin góð)
»
21.05.2006 20:47:35 / Arnar
Myndin tekin niður að óskum þeirra sem á henni voru.
»
21.05.2006 00:59:00 / Arnar
Sælt veri fólkið
Tími kominn á að ég hendi inn smá færslu hérna.
Hversu geðveikt er að Silvía Nótt gat bara ekki neitt í
evróvisíon, púað á hana, söng illa, og labbaði burt grenjandi og
öskrandi eins og lítið barn. Það er góð hugmynd amk. En svona til
að maður komi nú að því þá var furðulegt hvað mestu þjóðfélagsendar
komust áfram með léleg lög en ekki við, enda kannski ekki furðulegt
með stelpuna þarna rífandi kjaft alla daga.
Finnar eru síðan bara menn dagsins, eina lagið sem var
eitthvað varið í (eða raunar var litháen með gott lag líka) og þeir
unnu þetta og tóku 2 bikara og blómvönd fyrir.
En
síðan er ég líklega eini maðurinn sem er ekki í sjallanum núna, ég
eyddi kvöldinu í mat hjá ella og júróvisíon og síðan heim að læra
eðlisfræði (takk)
Síðan eyddi ég góðum tveimur klukkutímum á föstudag í að
standa og selja álfa á glerártorgi og komst að því að ég get fengið
gamlar konur til að versla hvað sem er.
En
annars hef ég ekkert merkilegt að segja að vanda.
Kannski ég komi bara með eina glansandi heimasíðu svona bara
af handahófi.
Heyrðu, það var ekki ónýt síðan sem ég stumbla-ði fyrst
inná... ábyggilega geðveikur leikur enda geðveik mynd sem hann er
byggður á. Ef fólk getur skilið hvernig maður gerir eitthvað annað
en ekkert í honum má það endilega láta mig vita
http://www.bbc.co.uk/radio4/hitchhikers/game_andrew.shtml
Og
síðan verður bara að fylgja mynd af flottasta vélmenni sem ég hef
séð í kvikmynd

kvittiði síðan
Arnar
»
15.05.2006 22:14:33 / bobby
Jæja, ansi langt síðan að maður bloggaði, margt hefur á daga
mína drifið en ég nenni nú ekki að segja ykkur frá því öllu. Það
sem stendur upp úr þessa helgi er afmælið mitt, kjallinn orðinn 19
ára gamall og klukkan tifar í 20 árin. Margt um góðar gjafir og
kveðjur og vil ég þakka kærlega fyrir mig. Svo tókur Liverpool sig
til og unnu FA Cup á afmælisdaginn minn, þvílíkur heiður. Alltof
spennandi leikur, hélt að við værum að missa þetta en svo skoraði
besti miðjumaður ensku deildarinnar Steven Gerrrard gullfallegt
mark og jafnaði í 3-3, því tók framlenging við, þar var ekkert um
mörk en mikið um krampa meðal leikmanna. Þetta endaði svo í
vítakeppni þar sem Reina fór á kostum og varði þrjú stykki og það
var staðreynd, Liverpool hampaði FA bikarnum í sjöunda sinn.
Svo var bara farið á djammið, jaa djamm, veit ekki hvort ég
kalli það djamm þar sem ég var edrú, en ég fór allavega og skemmti
mér í góðra manna hópi. Svo er maður að heyra að það hafi allt
verið að sjóða upp úr út um allan bæ, slagsmál, Elvis hundurinn að
missa það, litlar fullar stelpur í kjarnaskógi og margt margt
fleira en við nennum ekki að velta okkur upp úr því. Ég get nú ekki
sagt að það hafi verið troðið í Sjallanum en um 2 leytið taldi ég
mér til gamans 15 manns á dansgólfinu, ekki voru það fleiri en það
þannig að leiðin lá á Kaffi Ak og þar var troðið og rúmlega
það.
Annars sit ég hér upp í sófa og er að horfa á sjónvarpið, er að
bíða óþreyjufullur eftir næsta og jafnframt síðasta Prison Break
þættinum en hann verður örugglega ruuusalegur. Talandi um
sjónvarpsþætti þá rakst ég á síðu sem varðar Jack Bauer,
söguhetjuna í "24" þáttunum og þarna eru nokkrir góðir brandarar
þar sem ýtt er undir harðan hetjuskap Bauers sem er stundum
yfirþyrmandi að mínu mati en hérna koma nokkrir góðir:
When Kim Bauer lost her virginity, Jack Bauer found it and put
it back
Jack Bauer played Russian Roulette with a fully loaded gun and
won
Jack Bauer was never addicted to heroin. Heroin was addicted to
Jack
On a high school math test, Jack Bauer put down "Violence" as
every one of the answers. He got an A+ on the test because Jack
Bauer solves all his problems with Violence
Jack Bauer arm once wrestled Superman. The stipulations were the
loser had to wear his underwear on the outside of his pants
fyrir áhugasama þá er fleiri brandara að finna hér:
http://www.notrly.com/jackbauer/index.php?topthirty
Nú styttist
óðfluga í Júróvisíon og því ætla ég að hafa smá getraun. Hvar
heldur þú að Silvía Nótt endi í forkeppninni og ef hún kemst áfram
hvar endar hún þá í alvörukeppninni? Stór vinningur fyir að hafa
fyrra eða seinna rétt og ef bæði eru rétt þá stækkar
vinningurinn.
En þetta er komið
gott af bloggi í bili, hafið það gott í vikunni sem gengin er í
garð. Kvikmynd færslunnar er svo Pirates of the
Carrabien.
Trausti
Þór
»
08.05.2006 15:17:23 / Arnar
Sælir
Heyrðu samkvæmt mínum útreikningum þá eru liðnir svona 6 dagar
frá síðustu færslu og það er ekki nema merki um að það þurfi að
fara koma ný. Ég á samkvæmt reglubókinni að taka þessa færslu svo
ég verð bara gera það.
Uhh.. til að maður nefni nú aðeins skólann þá átti ég að vera
líklega núna að leggja 6 blaðsíðna ritgerð um íþróttavöllinn á
kennaraborðið í M2 (vistfræði), en sökum einhvers þá er hún ekki
alveg búin og í raun ekki byrjuð.
Síðan ber að nefna mestu vonbrigði sem ég hef upplifað á seinni
árum. Við unnum Ír-ingana sem ég minntist á í síðustu færslu í 8
liða úrslitum, síðan var flogið suður á föstudag til að spila við
HK í 4 liða úrslitum (sem átti að vera leikur sem við mundum
vinna) en aldeilis ekki því það gekk hreinlega ekkert upp og við
töpuðum honum. En hey, þá er alltaf hægt að horfa á björtu hliðina
og ætla bara vinna bronsið (3 sæti) en nei tókum við ekki uppá því
að spila hræðilega þá líka og tapa fyrir hnökkunum í selfoss (sem
mig vantar að heyra í) og árangur helgarinnar var sá lélegasti sem
hægt var að ýminda sér, 4 sæti. Það var nú búið að ákveða fögnuð í
tilefni þess að við ætluðum að vinna þetta allt, og skella okkur
bara á Pál, en ég vil meina að við höfum frekar verið að drekkja
sorgunum það kvöldið.
Ætli þetta sé ekki nóg af tuði um ómerkilega hluti. Jú einn
hlutur í viðbót, Jeff Who? er alveg gjörsamlega að spilast í
tölvunni minni við miklar undirtektir þessa daga. (sem fyrir
þá sem þekkja mig nógu vel, þýðir að ég hlusta á sömu lögin aftur
og aftur og aftur) Steini verslaði sér þennan disk og fékk að heyra
það fyrir að vera kaupa lélegan disk, en þetta er bara með betri
diskum sem maður hefur heyrt í fleiri ár.
En síðan held ég að ég komi bara með mynd og smá heimasíðu
jafnvel hér í lokin.
 
Eða kannski maður taki þetta í aðra verðlaunaspurningu í ljósi
þessa gífurlega áhuga fólks á henni (eða raun svarinu hennar Sirrý
og meðfylgjandi verðlaunum (sem voru engin))
Ég get sagt að myndin er úr þáttum sem hétu "The Adventures of
Teddy Ruxpin" sem er einmitt útlenska nafnið á einum sem er á
myndinni.
Svo hér spyr ég, hverjir eru þessi kumpánar á
myndinni, ég get sagt að þeir voru uppá pallborðinu í
feikivinsælu sjónvarpsefni um það leiti sem ég var í maga móður
minnar. Og að auki hvað hét Bleiki loðni vinur
þeirra sem var sterki maðurinn í hópnum ? Ég
reikna með rosalegum verðlaunum í þetta skipti og hvet alla til að
prófa sig á gátunni góðu.
En ætli þetta sé ekki bara feikigott og ég mæli með Jeff Who ?
fyrir alla þá sem vilja hlusta á góða tónlist
Og já síðan vil ég benda á að útúr könnunni margumdeildu kom að
konur eiga klárlega að fá bílpróf og við sættum okkur við þá
niðurstöðu.
Og einnig vil ég benda á að ný könnun er komin inn. Um eitthvað
minna umdeilt
| Eiga konur að fá bílpróf??? |
| Já klárlega |
36% |
| Já sumar |
3% |
| Nei alls ekki |
6% |
| ekki að ræða það |
33% |
Djöfulsins karlrembur eru þið |
22% |
Síðan virðist mér að msnin okkar félaga sé komin hér í einhvern
link þarna uppi sem er ekkert nema gott mál, en mig grunar að allt
fólk sem skoðar þetta þekki okkur, en hver veit.
Takk og kvittiði síðan
Arnar
»
02.05.2006 20:37:34 / bobby
Jæja, ætli ég verði ekki að henda inn línu hérna svo ég skilji
ekki Arnar eftir í skítnum.
Ég er búinn að vera að skrifa 25 bls ritgerð alla helgina og er
ég nokkuð viss um að þetta sé versta helgi lífs míns sem nú leið.
En það er á enda og er ég því mjög glaður þessa stundina. Ég held
að ég hafi aldrei lært svona mikið og afsannaði ég íslenska
máltakið ,,það sem þú veist ekki, skaðar þig ekki" margoft um
helgina.
uuu...Ég var í fjölmiðlafræði í dag og Birgir Guðmundsson, pabbi
Gunna Bígí kom í heimsókn en hann er fjölmiðlafræðitæknimeistari
eða eitthvað svoleiðis en hann kom og ræddi um um blaðamenn og
leist mér bara nokkuð vel á það. Ég gæti allavega staðið mig betur
en ógeðin á DV, ekki það að ég sé að upphefja sjálfan mig heldur er
DV bara svo slakt. Alveg versta blað í heimi.
Ég var að koma úr fótbolta og er alveg búinn á því í
fótunum. Sit hérna fyrir framan sjónvarpið og er að horfa á
strákana, ég veit ekki hvað fólk er að tuða um að þeir séu búnir á
því, ég allavega hlæ ennþá að þeim og finnst mér Gunni og Atli sem
bættust í hópinn algjörir snillingar. Hins vegar langar bróður
mínum að horfa á ó sí(O.C.). Það eru svosem ágætis þættir, fyndið
samt hvað það sést aldrei ljótur einstaklingur í þeim. En ég er á
þeirri skoðun að O.C. og One tree hill og hvað þeir heita nú allir
séu bara eftirlíkingar af hinum fullkomnu unglingaþáttum sem hétu
Fjör á Fjölbraut en ég horfði alltaf á þá
þegar ég var lítill, alveg geggjaðir þættir í þá daga, er ég
sá eini sem man eftir þeim??
En´ætli ég endi þetta ekki á fréttum og einhverju dralli sem
maður hefur verið að skoða á netinu.
http://mbl.is/mm/folk/frett.html?nid=1199151
– ég veit ekki hvort ég myndi setja það á konuna mína að fara að
koma sér í form þegar hún er nýbúin að eignast barn, mér finnst
Cruise-in nokkuð ákafur þarna, en maður botnar nú ekkert í þeim
manni lengur eftir fréttir síðustu daga. Vildi að konan sín
eignaðist barnið í algjöru hljóði, vildi að börnin sín horfðu á
fósturmömmu þeirra eignast barnið hans Cruise og svo ætlaði hann að
borða naflastregin og fylgjuna af nýfæddu barni sínu, hvað er að
þessum manni???
http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1199179
– Jææja, ég verð nú bara ágætlega stoltur af sjálfum mér ef ég
hleyp 8 km á svona 35 mín en neinei það er bara einhver fjögurra
ára drengur í Indlandi sem hleypur 65 km maraþon á um 7
klst.
http://omars.smugmug.com/gallery/1382206/10/66670573
- hahahahaha, ojjjjj
kvikmynd færslunar
er svo meistaraverkið Braveheart!!
endilega kvittið
svo
»
28.04.2006 19:47:19 / Arnar
Sælir
Nú er tími kominn á smá blogg á þetta bara.
Uhh... ég vil byrja þetta á að segja frá góðri framgöngu minni í
þýskuprófi (munnlegu takk) það var hreinlega hlegið að mér fyrir
það eitt að rugla saman Hannover og München, sem eru mjög lík nöfn
og þær eru nánast rétt hlið við hlið (nei eins langt frá og hægt er
sennilega)
Og síðan er maður stiginn uppúr veikindunum sem er alveg í snar
seinasta lagi því það er leikur á morgun hjá okkur í 3. flokk. Hann
er klukkan 2 uppí K.A heimili og ég hvet fólk til að koma horfa á
hann þar sem við munum hefna okkar á liði Breiðhyltinganna ( Í.R
)
Síðan í kvöld er stefnan að ég held tekin á Scary Movie 4 kl 10.
svo eftir að ég segi þetta hér þá reikna ég með að allir sem eru í
bíó þá séu einfaldlega þar útaf mér.
En ég reikna með að þetta sé komið flott af einhverjum sögum af
mér. Ég ætla henda hér inn einni fyndinni mynd (sem ég fann með
Valda-takkanum, geðveikur takki)
Kermit á góðum degi

Geðveikur mynd þetta
En síðan langar mig að koma með eitt það fyndnara sem ég hef
lesið (stelpur lesið þetta líka) Þetta er bara fyndið (Sad but true
eins og metallica sagði það)
MEÐ NÝJU DRIVE-IN HRAÐBÖNKUNUM
GETUR ÞÚ TEKIÐ ÚT PENINGA ÁN ÞESS AÐ ÞURFA AÐ FARA ÚT ÚR BÍLNUM
ÞÍNUM. LESTU LEIÐBEININGARNAR SEM PASSA VIÐ ÞITT
KYN OG LEGÐU Á
MINNIÐ SVO ÞÚ MUNIR ÞÆR ÞEGAR ÞÚ ÆTLAR AÐ NOTA NÝJA
HRAÐBANKANN. LEIÐBEININGAR FYRIR
KARLMENN: 1. Aktu að
hraðbankanum.
2. Skrúfaðu
niður hliðarrúðuna.
3. Settu kortið
í hraðbankann og sláðu inn leyninúmerið þitt.
4. Sláðu inn
upphæðina sem þú vilt taka út.
5. Taktu
kortið, peningana og kvittunina.
6. Skrúfaðu upp
rúðuna.
7. Aktu í
burtu.
LEIÐBEININGAR FYRIR
KONUR:
1. Aktu að hraðbankanum.
2. Bakkaðu
bílnum svo að hliðarrúðan sé við hraðbankann.
3. Settu bílinn
í gang aftur.
4. Skrúfaðu
niður hliðarrúðuna.
5. Finndu nú
veskið þitt og tæmdu úr því innihaldið í farþegasætið
og finndu kortið
þitt.
6. Finndu nú
snyrtidótið þitt og athugaðu hvort að andlitið sé OK í
baksýnisspeglinum.
7. Reyndu að
setja kortið þitt í hraðbankann.
8. Opnaðu
bílhurðina svo að þú náir betur.
9. Settu kortið
í hraðbankann.
10. Snúðu
kortinu rétt.
11. Leitaðu nú
að dagatalinu þínu í veskinu hjá þér, og lestu leyninúmerið sem þú
skrifaðir innan á kápuna á
dagatalinu.
12. Sláðu inn
leyninúmerið.
13. Ýttu á
"LEIÐRÉTTA" og sláðu inn rétt leyninúmer.
14. Sláðu inn
upphæðina sem þú vilt taka út.
15. Athugaðu nú
aftur hvort andlitið sé OK í baksýnisspeglinum.
16. Taktu
peningana og minnismiðann.
17. Tæmdu aftur
úr veskinu þínu og finndu seðlaveskið þitt, settu peningana í það.
18. Settu
minnismiðann í tékkaheftið.
19. Athugaðu
andlitið aftur.
20. Keyrðu tvo
metra áfram.
21. Bakkaðu
aftur að hraðbankanum.
22. Taktu
kortið þitt.
23. Tæmdu
veskið þitt og finndu hulstrið af kortinu og settu kortið þar.
24. Athugaðu
andlitið.
25. Settu
bílinn nú í gang aftur ! Aktu frá hraðbankanum.
26. Keyrðu
nokkra kílómetra.
27. TAKTU
BÍLINN ÚR HANDBREMSU !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
síðan verður að fylgja mynd sem ég fann og titillinn var "Lausnin á
vandanum stóra" (ég lýg því ekki og þetta eru hreint út ekki mín
orð (en nánast)

þetta fannst mér afar fyndin lesning. En ég held það sé ekkert
fleira sem ég nenni að vera tuða um. Svo ég slútta þessu bara hér
með.
En eitt.. er einhver hugmynd að setja inn svona eitthverjar
krossaspurningar um sjálfan sig og jafnvel mynd eða tvær (vita
fæstir hversu vel ég myndast) en endilega kommentið á það og það
gæti komið
hérna einhverntímann við tækifæri
Arnar
ég vil fá komment takk, skoða => Skrifa (orsök og
afleiðing)
»
25.04.2006 15:35:43 / Arnar
Sæl verið þið.
Ég stefni á að hafa þetta ögn styttra heldur en síðustu færslur
sökum þess að fólk virðist ekki nenni að lesa þetta svona langt.
Þannig að ég segi smá fréttir og tek eina 2 myndir á þetta í
lokin
Ég vil náttúrulega byrja þetta á því að segja að skoðanir
Trausta endurspegla ekki skoðanir mínar (Liv hvað ?). En það
er ekkert stórmál. Síðan skilst mér á öllu að við séum að fara taka
þátt í utandeildinni margfrægu í sumar ef allt smellur sem þarf að
smella. Sem er fjöldi leikmann sem ég held að sé í góðu standi en
hitt er að vita hverjir sjá um þetta núna þar sem Ali og
Toppmenn og Sport sáu um þetta í fyrra ?? En þetta er ekkert
nema gott mál.
En svona að helginni eins og fólk gerir svo oft í svona bloggi.
Helgin byrjaði alveg topp með því að ég kíkti á Óskar og fékk þar
ofgnótt af þáttum og lögum sem áttu að stytta mér stundir næstu
vikuna. En síðan hrundi allt þar sem ég var bara veikur á laugardag
þangað til núna svo að ég er búinn að horfa á þetta allt. Og
það verður seint of oft ítrekað hvað Andy, feiti vinur okkar í
hjólastólnum í Little Britain er fyndin persóna.
En hér kemur síðan bara ein svona mynd af mér síðan ég var
lítill sætur og ljóshærður (þvílíkt sem maður breytist)

og ég sé ekki betur en að ég sé í Turtles bol, toppiði það!
Síðan veit ég ekki af hverju ég geri þetta þar sem fólk nennir
ekki að lesa 3 mínútna pistil um ekkert, en ég ætla að henda inn
hérna nokkrum spurningum sem ég bið fólk að svara. (Sem ég stal
alveg rakbeint af síðunni hennar Írisar frænku.)
Nafn mitt?
Hvar kynntumst við?
Hvað er miðnafnið mitt?
Hvernig þekkiru mig eða hvernig veistu hver ég er?
Reyki ég?
Trúi ég á Guð?
Hvað hugsaðiru fyrst þegar þú sást mig?
Á ég systkyni?
Hvað finnst mér skemmtilegast að gera?
Manstu eftir því fyrsta sem ég sagði við þig?
Hverju er ég bestur í ?
Er ég feiminn ?
Er ég fyndinn?
Hef ég einhveja sérstaka hæfileika?
Gælunafn á kvikindið ?
Er ég ekki augljóslega betri bílstjóri en Steini ?
Höfum við kysst?
Hvað heldurðu að verði um mig framtíðinni?
Elskaru mig?
Langar þér að kyssa mig?
ég tek fram að ég stytti þetta svo það ættu flestir að ráða við
þennan fjölda.
gaman væri að sjá einhver svör við þessu
og síðan allir að kvitta takk fyrir!
Arnar
(sem er ekki frá því að hafa stækkað eftir að sofa
samfleytt nánast í 3 daga)
»
Síður: 1 2
|
|